• mið. 04. nóv. 2015
  • Fræðsla

KSÍ III þjálfaranámskeið 

Thjalfaranamskeid-27-okt-2015---0006

Knattspyrnusamband Íslands mun halda 3. stigs þjálfaranámskeið helgina 20.-22. nóvember. 

Námskeiðið er opið öllum sem lokið hafa við fyrstu tvö stigin, þ.e. KSÍ I og KSÍ II þjálfaranámskeið.   Námskeiðið samanstendur af þessu helgarnámskeiði auk 20 tíma í þjálfun hjá félagi. Upplýsingar um það verkefni fá finna í viðhengi.   

Dagskrá námskeiðsins er í vinnslu og verður auglýst síðar. Námskeiðsgjald er 25.500 kr.   

Opið er fyrir skráningu á námskeiðið en hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á dagur@ksi.is og eins með því að hringja í síma 510-2977. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja skráningunni: Nafn, kennitala, tölvupóstfang, símanúmer og félag.

Viðhengi vegna námskeiðs.