• mán. 03. okt. 2016
  • Fræðsla

KSÍ V þjálfaranámskeið haldið 7.-9. október 2016

Þjálfaranámskeið 2015

Helgina 7.-9. október mun Knattspyrnusamband Íslands standa fyrir 5. stigs þjálfaranámskeiði á höfuðborgarsvæðinu. Þátttökurétt á námskeiðið hafa allir þeir þjálfarar sem eru með KSÍ B/UEFA B þjálfaragráðu og fengu a.m.k. 70 af 100 í skriflega KSÍ B prófinu. Námskeiðið er upphafið af KSÍ A (UEFA A) þjálfaragráðu. Seta á þessu námskeiði framlengir einnig gildistíma KSÍ B skírteinis (UEFA B skírteinis) um þrjú ár.

Dagskrá námskeiðsins er hér í viðhengi. Þátttökugjald á námskeiðið er 26.500 krónur.

Skráning á KSÍ V þjálfaranámskeiðið er hafin og geta áhugasamir skráð sig með því að senda tölvupóst ádagur@ksi.is eða með því að hringja í 510-2977. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram við skráningu: nafn, kennitala, símanúmer, tölvupóstfang og félag.

Dagskrá