• fim. 19. jan. 2017
  • Fræðsla

KSÍ IV A þjálfaranámskeið 27.-29. janúar 2017

Þjálfari að störfum
lidsheild4

KSÍ IV A þjálfaranámskeið verður haldið helgina 27.-29. janúar 2017. Námskeiðið fer fram í Reykjavík og Hveragerði. Sú breyting hefur orðið að nú er KSÍ IV námskeiðinu skipt í tvo hluta, KSÍ IV A og KSÍ IV B. Síðari hluti námskeiðsins verður helgina 17.-19. febrúar. 

Þátttökurétt hafa allir þjálfarar sem setið hafa KSÍ III þjálfaranámskeið og skilað verkefni af því námskeiði. 

Dagskrá námskeiðsins má finna hér í viðhengi. Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar. 

Skráning er hafin en hægt er að skrá sig hér:

Þátttökugjald á fyrra námskeiðinu er kr. 25.000. Innifalið er rúta til og frá Hveragerði á laugardegi og sunnudegi. 

Hægt er að greiða á staðnum eða með því að leggja inn á reikning Knattspyrnusambands Íslands: 

0101-26-700400
Kt. 700169-3679
Æskilegt er að fólk sem greiðir í heimabanka sendi kvittun í tölvupósti á dagur@ksi.is

Ef ykkar félag ætlar að greiða, þá þarf framkvæmdastjóri félagsins eða yfirþjálfari félagsins að staðfesta það með tölvupósti á dagur@ksi.is