• þri. 24. jan. 2017
  • Fræðsla

Vinnufundur um afreksstefnur og afreksstarf

Afreksstarf ráðstefna KSÍ 2017

Laugardaginn 21. janúar komu saman fulltrúar 36 félaga á vinnufund í KSÍ. Efni fundarins var afreksstefnur og afreksstarf KSÍ og félaganna. 

Fulltrúunum var skipt í umræðuhópa þar sem fyrrnefnd efni voru rædd, sem og hvernig félögin og KSÍ geta unnið saman að afreksmálum. Ljóst er að umræðurnar hjálpa KSÍ við mótum afreksstefnu sambandsins og einnig komu fram fjölmörg atriði sem félögin geta nýtt sér við þeirra afreksstarf.