• fim. 09. feb. 2017
  • Fræðsla

KSÍ IV B þjálfaranámskeið 17.-19. febrúar 2017

KSI-MERKI-PNG

KSÍ IV þjálfaranámskeið verður haldið helgina 17.-19. febrúar 2017. Námskeiðið fer fram í Reykjavík. Sú breyting hefur orðið að nú er KSÍ IV námskeiðinu skipt í tvo hluta, KSÍ IV A og KSÍ IV B. Þjálfarar geta tekið þetta námskeið þó þeir hafi misst af fyrri hlutanum. Hann verða þeir þá að taka að ári.

Þátttökurétt hafa allir þjálfarar sem setið hafa fyrstu þjálfarastigin (KSÍ I, KSÍ II og KSÍ III).

Dagskrá námskeiðsins má finna hér í viðhengi. Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar.

Skráning er hafin en hægt er að skrá sig hér: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSemEu-UIMoGOBf1nbf21Y-BUcgRDK-mmD4K835lc8AlW8f-hw/viewform

Þátttökugjald á fyrra námskeiðinu er kr. 15.000.

Hægt er að greiða á staðnum eða með því að leggja inn á reikning Knattspyrnusambands Íslands:

0101-26-700400

Kt. 700169-3679

Æskilegt er að fólk sem greiðir í heimabanka sendi kvittun í tölvupósti á dagur@ksi.is.

Ef ykkar félag ætlar að greiða, þá þarf framkvæmdastjóri félagsins eða yfirþjálfari félagsins að staðfesta það í tölvupósti. við Dag Svein Dagbjartsson, dagur@ksi.is.

.