• fim. 31. ágú. 2017
  • Fræðsla

Hæfileikamótun N1 og KSÍ á Norðurlandi

Picture1

Þessa dagana er Hæfileikamótun N1 og KSÍ að fara af stað og er það Dean Martin sem fer fyrir verkefninu.

Æfingarnar eru fyrir bæði stelpur og stráka sem eru fædd 2003 og 2004.   

Dagskrá heimsóknar á Akureyri:   

Föstudagur 1.september:

-16.00 -17:15 Æfing með stúlkum - KA-heimilinu. 

-17.15-18:30 Æfing með drengjum - KA-heimilinu.  

Helstu markmið hæfileikamótunar KSÍ eru að:  

• Fjölga þeim leikmönnum sem fylgst er með.  

• Fylgjast með yngri leikmönnum en áður og undirbúa þá fyrir hefðbundnar landsliðsæfingar.  

• Koma til móts við minni staði á landsbyggðinni og mæta þeirra þörfum.  

• Koma til móts við leikmenn stærri félaga á höfuðborgarsvæðinu sem að öllu jöfnu væru ekki valdir á landsliðsæfingar.  

• Bæta samskipti við aðildarfélögin og kynna fyrir þeim stefnu KSÍ í landsliðsmálum.  

• Undirbúa leikmenn enn betur til þess að mæta á landsliðsæfingar seinna með fræðslu Hér að neðan má sjá hópana báða í einu skjali. 

Hóparnir