• fös. 02. feb. 2018
  • Fræðsla

Kynferðislegt áreiti og ofbeldi

ÍSÍ
Kynferdisleg-areitni-isi-flag

Í ljósi umræðunnar í kjölfarið á #metoo hefur ÍSÍ sent erindi á sérsambönd og íþróttabandalög, íþróttafélög og deildir þeirra, til að upplýsa um það helsta sem nú er unnið að af hálfu ÍSÍ varðandi málefnið.  Á vef ÍSÍ hafa auk þess verið birtar ýmsar gagnlegar upplýsingar og fræðsluefni,  

Eins og fram kemur á vef ÍSÍ felst besta forvörnin í því að fræða, eiga góðar siðareglur og að opið og jákvætt andrúmsloft ríki í félaginu. Þegar nýr þjálfari hefur störf innan félagsins er æskilegt að fá meðmæli frá félögum sem hann hefur þjálfað hjá og fara yfir siðareglur félagsins.

Ef grunur leikur á kynferðislegu ofbeldi eða einhverjar spurningar vakna skal hafa samband við Barnavernd í því sveitarfélagi þar sem brotið er framið ef um barn er að ræða og tilkynna í nafni félagsins. Ef um fullorðinn einstakling er að ræða skal hringt í lögreglu í síma 112.


Á forsíðu vefs ÍSÍ er að finna hnapp sem hlekkjar inn á fræðsluefni og er sams konar hnappur nú einnig á forsíðu vefs KSÍ.