• fim. 03. feb. 2022
  • Fræðsla

Grunnnámskeið KSÍ í markmannsþjálfun á Akureyri 18.-19. febrúar 2022

Knattspyrnusamband Íslands verður með grunnnámskeið í markmannsþjálfun dagana 18.-19. febrúar 2022. Námskeiðið fer fram á Akureyri í Hamri og Boganum.

Námskeiðið hentar öllum þjálfurum sem vilja bæta sig í þessum mikilvæga þætti leiksins, markmannsþjálfun. Námskeiðið er auk þess undanfari KSÍ B Markmannsþjálfunar gráðunnar sem hefst í mars. En allir markmannsþjálfarar sem stefna á að taka KSÍ B Markmannsþjálfaragráðuna þurfa fyrst að sækja Grunnnámskeið KSÍ í markmannsþjálfun, auk þess að hafa setið KSÍ C 1 og KSÍ C 2 þjálfaranámskeið.

Dagskrá námskeiðisins má finna hér að neðan.

Dagskrá

Námskeiðsgjaldið er 25.000 kr.

Opið er fyrir skráningu og lýkur henni miðvikudaginn 16. febrúar: https://forms.gle/GQD96uwH2uEnRF2d8