• fim. 17. feb. 2022
  • Landslið
  • A kvenna

A kvenna - Ísland mætir Nýja Sjálandi í fyrsta leik á SheBelieves Cup

Ísland mætir Nýja Sjálandi í fyrsta leik liðsins á SheBelieves Cup.

Leikurinn hefst kl. 01:00 að íslenskum tíma aðfararnótt föstudagsins 18. febrúar, en leikurinn hefst kl. 17:00 að staðartíma í Los Angeles. Leikið verður á heimavelli LA Galaxy, Dignity Health Sports Park.

Þetta er aðeins í annað sinn sem liðin mætast, en fyrri leikurinn Algarve Cup árið 2016 og endaði með 1-1. jafntefli. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir skoraði mark Íslands í þeim leik.

Ísland leikur þrjá leiki á mótinu, mæta Tékklandi sunnudaginn 20. febrúar kl. 23:20 og svo Bandaríkjunum á Toyota Stadium í Frisco, Dallas kl. 02:08 aðfaranótt fimmtudagsins 24. febrúar.