• þri. 20. des. 2022
  • Fræðsla

Bókin Íslensk knattspyrna 2022 er komin út

Bókin Íslensk knattspyrna 2022 er komin út í 42. skiptið í röð en hún hefur komið út samfleytt frá árinu 1981. Sögur Útgáfa gefa út bókina sem er stærri en nokkru sinni fyrr, 288 blaðsíður í stóru broti og skreytt með um 400 myndum af leikmönnum og liðum. Víðir Sigurðsson er höfundur bókarinnar en hann hefur skrifað hana samfleytt frá árinu 1982.

Í bókinni er sagt ítarlega frá Íslandsmótunum 2022 í öllum deildum karla og kvenna, sem og yngri flokkunum, bikarkeppninni, Evrópuleikjunum og vetrarmótunum. Þá er landsleikjum ársins í öllum aldursflokkum gerð góð skil, sérstaklega leikjum kvennalandsliðsins í lokakeppni Evrópumótsins, og fjallað sérstaklega um íslenska knattspyrnufólkið sem leikur erlendis.

Í bókinni er ítarleg tölfræði um leikmenn og lið, sjá má liðsskipan allra liða í öllum deildum í meistaraflokkum karla og kvenna, leikjafjölda leikmanna í efri deildum, leikjahæstu karla og konur, marka- og leikjahæstu karla og konur í deildakeppni hér og erlendis ásamt mörgu fleiru.

Viðtöl í bókinni eru við Söndru Sigurðardóttur, markvörð Íslands- og bikarmeistara Vals og íslenska landsliðsins, og Höskuld Gunnlaugsson, fyrirliða Breiðabliks.

Í ár er bókin gefin út með tveimur kápum. Á kápu hefðbundnu útgáfunnar er mynd af Íslands- og bikarmeisturum Vals í kvennaflokki og sú útgáfa er í almennri sölu og dreifingu og fæst í bókaverslunum Eymundsson um allt land. Einnig er hægt að panta hana, ásamt eldri bókum, hjá Sögur Útgáfa, pontun@sogurutgafa.is eða 557 3100.

Í sérútgáfu er mynd af Íslandsmeisturum Breiðabliks í karlaflokki og sú bók er eingöngu til sölu hjá Breiðabliki en upplýsingar eru á heimasíðu félagsins, www.breidablik.is.