• fim. 22. des. 2022
  • Fræðsla

KSÍ C 1 þjálfaranámskeið í janúar 2023

KSÍ mun halda tvö KSÍ C 1 þjálfaranámskeið í janúar. Það fyrra verður helgina 14.-15. janúar og það síðara helgina 21.-22. janúar.

Þátttakendur fá aðgang að kennsluforritinu Canvas viku áður en námskeiðið hefst. Þá viku þurfa þátttakendur að nýta til undirbúnings, horfa á fyrirlestra, svara spurningum úr einstaka fyrirlestrum og undirbúa umræðuefni.

Það er 16 ára aldurstakmark á námskeiðið, en þau sem verða 16 ára á árinu eru gjaldgeng á námskeiðið.

Ath. – skráningu lýkur því rúmri viku fyrir námskeið.

Seinni helgina (21.-22. janúar) er stefnt að því að hafa sér hóp sem eingöngu er skipaður stúlkum.

Dagskrá námskeiðsins helgina 14.-15. janúar má sjá hér. Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar.

Námskeiðsgjald er 25.000 kr.

Markmið KSÍ C þjálfaranámskeiðsins er að gefa þjálfurum tæki og tól til að:
- Búa börnum og unglingum öruggt umhverfi til að stunda knattspyrnu
- Skipuleggja æfingar
- Efla færni sína í þjálfun/kennslufræði
- Bjóða iðkendum upp á æfingar við hæfi

Skráning:
14.-15. janúar (skráningu lýkur 6. janúar): KSÍ C 1 þjálfaranámskeið, 14.-15. janúar 2023 (google.com)
21.-22. janúar (skráningu lýkur 13. janúar): KSÍ C 1 þjálfaranámskeið, 21.-22. janúar 2023 (google.com)

Ath. af gefnu tilefni fylgja hér fyrir neðan reglur fræðslunefndar KSÍ um mætingu á þjálfaranámskeið:
• Fjarvist vegna KSÍ: (t.d. leikir í móti og landsliðsæfingar) að hámarki 4 kennslustundir. 5 kennslustundir þýðir nýtt námskeið.
• Fjarvist af öðrum ástæðum: að hámarki 2 kennslustundir. 3-4 kennslustundir þýðir verkefni. 5 kennslustundir þýðir nýtt námskeið.

Vinsamlegast athugið að mót á vegum KSÍ eru Lengjubikar, Bikarkeppni KSÍ og Íslandsmót. Önnur mót eru ekki á vegum KSÍ.