• þri. 14. feb. 2023
  • Landslið
  • A kvenna

A kvenna mættar til Spánar

A kvenna eru mættar til Spánar þar sem liðið tekur þátt í Pinatar Cup. 

Ísland mætir Skotlandi, Wales og Filippseyjum og er fyrsti leikurinn á morgun, miðvikudag, gegn Skotlandi.

Tveir nýliðar eru í íslenska hópnum, þær Ólöf Sigríður Kristinsdóttir og Diljá Ýr Zomers, en Diljá á einn A landsleik að baki sem var með U23 liðinu en var skráður A landsleikur.

Öllum leikjum Íslands verður streymt beint á KSÍ TV.

Leikir Íslands:

15. febrúar kl. 14:00 Ísland - Skotland

18. febrúar kl. 19:30 Ísland - Wales

21. febrúar kl. 19:30 Ísland - Filippseyjar

Pinatar Cup 2023