• þri. 01. feb. 2022
  • Fræðsla

KSÍ B Markmannsþjálfaragráða 2022

KSÍ mun bjóða upp á KSÍ B Markmannsþjálfaragráðu í ár. Námskeiðið hefst í mars og áætlað er að því ljúki í lok september 2022.

Markmið námskeiðsins er að markmannsþjálfarar öðlist betri færni í að greina sinn markmann á æfingum og í leikjum og að setja upp æfingaáætlun með það að markmiði að bæta markmanninn í bæði tækniatriðum og leikfræði.

Inntökuskilyrði er að markmannsþjálfari hafi lokið bæði KSÍ C þjálfaragráðu (áður KSÍ I og KSÍ II) og Grunnnámskeiði KSÍ í markmannsþjálfun.

Samkvæmt Leyfiskerfi KSÍ þurfa allir markmannsþjálfarar félaga í tveimur efstu deildum karla og í efstu deild kvenna að hafa markmannsþjálfaragráðu.

Námskeiðið er um 80 kennslustundir, kostar 85.000 kr. og samanstendur af tveimur helgarnámskeiðum, verkefnavinnu og kynningu á lokaverkefni.

Fyrsta helgin verður 18.-19. mars (fös-lau), síðari helgin verður 9.-10. apríl (lau-sun) og áætlað er að kynning lokaverkefnis verði föstudaginn 23. september 2022.

Hér að neðan er útskýring á uppbyggingu námskeiðisins

Uppbygging námskeiðsins

Umsækjendur þurfa að fylla út umsóknareyðublað sem finna má hér að neðan og senda á dagur@ksi.is í síðasta lagi föstudaginn 25. febrúar 2022.

Umsóknareyðublað

Dagsetningar:

KSÍ B M 1, 18.-19. mars í KSÍ og í Hveragerði

20. mars - 8. apríl, verkefnavinna hjá félagi

KSÍ B M 2, 9.-10. apríl í KSÍ og Egilshöll

11. apríl - 23. september, verkefnavinna hjá félagi

23. september, kynning á lokaverkefni og útskrift